Gjafabréf
Gefðu bragðgóða upplifun. Veldu úr fjölbreyttum gjafabréfum í bröns, leikhúskvöldverð eða inneign sem smellpassar fyrir afmæli, brúðkaup, starfsfólkið eða einfaldlega til að gleðja.
Gjöf fyrir hvert tilefni
Það jafnast fátt á við góða stund yfir mat og drykk í góðum félagsskap. Gjafabréfin okkar á Geira Smart henta við öll hugsanleg tækifæri – allt frá ljúfum dögurði og hátíðlegum kvöldverði yfir í sérsniðna upphæð sem viðtakandinn nýtir að vild. Á vef Iceland Hotel Collection by Berjaya getur þú skoðað allt úrvalið á einum stað og fundið fullkomna gjöf fyrir hvaða augnablik lífsins sem er.



