Þetta verður í sjöunda sinn sem hann tekur þátt í Reykjavík Food & Fun & festir þar með sess sinn sem einn ástsælasti endurkomu kokkur Food & Fun fjölskyldunnar.
Jesse fór í listnám áður en hann byrjaði sinn feril í matreiðslu. Hann vakti fyrst athygli sem yfirkokkur á Bar Pilar í Washington D.C. þar sem síbreytilegur matseðill hans með modern amerískum réttum með asískri og perúskri fusion, veitti honum verðskuldaða athygli. Nálgun hans byggir á árstíðabundnu hráefni úr nærumhverfinu, einfaldleika & sköpunargleði!


Þessi kvöld verður eingöngu boðið upp á Food & Fun smakkseðilinn niðri á Geiri Smart. Hefðbundinn à la carte kvöldmatseðill verður ekki í boði. Við mælum eindregið með því að panta borð.