Geiri býður í bíó

Miðvikudagsbíó í boði Geira Smart & Bíó Paradís 

Við höfum tekið höndum saman við okkar góðu nágranna í Bíó Paradís til að bjóða upp á hinn fullkomna pakka: góðan mat, kokteil og bíóferð í framhaldinu.

Þú borgar aðeins fyrir matinn – við bjóðum upp á drykkinn og bíómiðann!

Svona virkar tilboðið: Þú pantar þér tvírétta máltíð af matseðlinum okkar (einn aðalrétt og annaðhvort forrétt eða eftirrétt) á venjulegu verði.

Í kaupbæti færð þú frá okkur:

  • Kokteil mánaðarins – í boði hússins sem fordrykk.
  • Bíómiða í Bíó Paradís – gjöf sem þú nýtir sama kvöld.

Bóka borð

 

Skilmálar: Tilboðið gildir eingöngu ef bókað er í gegnum Dineout viðburð Geira Smart. Bíómiðann þarf að nota sama kvöld með því að framvísa kvittun frá Geira Smart. Við mælum með að gestir kynni sér sýningartíma á bioparadis.is og hagi borðapöntun í samræmi við þá svo kvöldið gangi snurðulaust fyrir sig.